Þar sem ég sel myndir

View My Portfolio

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Palmi Snær
  • Staður: Höfn
  • Atvinna: Nemi
  • Um mig: Ég er nemi/bensíntittur og á heima á Höfn. Mér finnst gaman að taka myndir og reyni að taka eins og ég get af myndum til að setja hingað inn

25. september 2009 klukkan 19:15

Thailand

07. apríl 2008 klukkan 13:59
Eg bara nenni ekki ad skrifa neitt eins og er um that sem eg hef gert herna. En eg er buinn ad setja inn slatta af myndum og tad koma sennilega ekki fleiri myndir fyrr en i mai af thvi eg er ad fara a sudur hluta thailands og eg veit ekki hversu mikklu net sambandi eg er i en endilega skodid myndirnar.

......

03. janúar 2008 klukkan 00:15
ég hef nú ekki bloggað neitt síðan í Október.
En það hefur nú ekkert svo sem gerst
ég er búinn að fá myndavélina mína aftur og reyndi að taka myndir af Norðuljósum en það gekk nú ekkert svakalega vel.

Um jólin fékk ég mikið af pökkum og það var mjög gaman.

Núna er ég að ljúka við kaup á ferð til Thailands sem verður í um 12 vikur alveg frá 4 mars til 26 maí og það verður alveg pott þétt mjög gaman.

en annars þá vil ég bara benda á flickr síðuna mína

www.flickr.com/photos/palmis/

BíB (bless í bili)


Myndavélin í útlöndum

11. október 2007 klukkan 12:14
Já eins og titillin segir þá er myndavélin mín í útlöndum ég held hún hafi farið til Þýskalands. Hún varð svo óheppin að fá sjaldgæfa sjúkdóm sem hefur komið upp í nokkrum D80 og D70 vélum en hún vill ekki slökkva á sér. Það er eins og að takkinn hafi farið úr sambandi eða eitthvað. En hún kemur vonadi eftir næstu viku.

En annars þá er ég að æfa mig í því að breita lit myndum yfir í svarthvíttar myndir. En það getur verið erfitt að fá flotta svarthvíta mynd.

En annað var það ekki, skelti inn nokkrum myndum.
KV Pálmi

Ferð til Thailands í ágúst

02. september 2007 klukkan 10:33
Jæja þá er maður að byrja á því að senda inn myndir úr síðustu ferð. Gæti verið að ég skrifi eitthvað um ferðina en það kemur seinna. Myndirnar fara inn í Thailands möppuna og þar inn í möppu merktri ágúst. kíkið endilega á þetta
Kv Pálmi

Listin að pakka

12. ágúst 2007 klukkan 18:06
Núna er ég að pakka niður fyrir mína aðra heimsreisu. Á morgun fer ég til reykjavíkur og svo flýg ég til Danmerkur snemma á miðvikudaginn eða kl 01:00 ég þarf að býða í Danmörku í eitthverja tíma svo flýg ég til Bangkok.
Í Bangkok þarf ég að fara á annan flugvöll og fara í flug til bæjar sem heitir Khon Kaen og þar verð ég vonandi sóttur.
Áætlaður ferðatími er um 27 tímar og 55 mínútur en þar af eru aðeins 14 tímar og 20 mínútur í flug en en um 13 tímar í byð.
Ég vona að þessir 27 tímar verði ekki of lengi að lýða.

Svo þegar ég kem heim skelli ég slatta af myndum hingað inn

Kveð í bili
Pálmi

Helgar ferð

08. júlí 2007 klukkan 23:04
Um helgina fór ég í sveitina og þar tók ég slatta af myndum og sumar urðu bara nokkuð Töff.

Ég lék mér svolítið með filtera og þess háttar til dæmis til að skerpa myndirna, ég prófaði líka nýtt, tók myndir frá jörðinni og upp í loftið, svo var ég líka að æfamig að taka á tíma og það gekk bara nokkuð vel, ég tók myndir hjá Beljanda og ég vona að þær myndir hafi komið vel út.

Mótorhjóla Skilti

14. júní 2007 klukkan 12:30
12.júní bað pabbi mig um að fara og taka svolítið af myndum af nokkrum strákum að leika sér á mótorhjólum, stökkva og svona ýmislegt. Á meðan þeir sýndu lystir sýnar á hjólunum þá tók ég um 400 myndir. Auðvitað er slatti sem er bara af hólnum af því svolítð áður en þeir byrjuðu að stökkva þá byrjaði ég að smella myndum svo vélin væri nú byrjuð þegar þeir væru loks komnir.

ég ætla að senda inn eitthvað af þessum myndum og það eru nú þegar 2 komnar en þær verða notaðar í skilti sem á að setja upp til að kynna þessa braut.

endilega kommenti og segið hvað ykkur finnst um myndirnar

Kv Pálmi

New style

16. maí 2007 klukkan 23:33
Breitti aðeins hvernig síðan er uppsett og mér líkar bara þokkalega vel við þetta útlit.

Gæti verið að ég reyni að fara setja inn eitthvað fleira af myndum en það er þá hægt að fylgjast með því í rammanum sem er merktur nýjasta myndin.

Ég er að fara til reykjavíkur eftir nokkra daga og þá gæti verið að ég myndi taka eitthvað af myndum þar.

Bæjóóóó
Pálmi

Haus (Banner)

12. maí 2007 klukkan 14:29
Var að setja flottan banner

Tók þessa mynd sem RAW og þetta er svona fyrsta prufan með RAW hjá mér

Nýjasta myndin


Ýtið a myndina til að komast i möppuna

Næst til Thailands

Tíminn

Spinner